Kona í Tennessee í Bandaríkjunum var við páskaeggjaleit í garðinum sínum ásamt þriggja ára syni sínum þegar hún varð vör við tennisskó undir veröndinni.
Tara Hanouskova segir að hún hafi fundið rotnunarlykt fyrr í vikunni en ekki fundið ástæðuna fyrr en í páskaeggjaleitinni síðastliðinn miðvikudag. Tennisskórnir reyndust tilheyra líki en sem betur fer kom Hanouskova auga á það áður á undan syni sínum.
Hanouskova segist ekki vita hvernig líkið endaði undir veröndinni en lögregluyfirvöld segja að maðurinn hafi verið látinn í um það bil tvær vikur. Krufning leiddi í ljós að hann geti hafa látist af náttúrulegum örsökum og mun dauðsfallið ekki rannsakað sem morð að svo stöddu.
Þar til lokaniðurstöður krufningar liggja fyrir mun lögreglan halda áfram að rannsaka hver maðurinn er og afhverju hann var undir veröndinni.