![]() |
![]() Söngsveitin Fílharmónía flutti Sálumessu Mozarts, Requiem, í Langholtskirkju á tónleikum laugardaginn 20. mars og aftur degi síðar ásamt einsöngvurum og kammersveit. Stjórnandi verður Bernharður Wilkinson. Sálumessan, eitt rómaðasta verk kórbókmenntanna, var síðasta verk þessa ástsæla tónsnillings og svo virðist sem Mozart hafi verið það ljóst að hún yrði svanasöngur hans -- á vissan hátt hans eigin sálumessa. Honum entist raunar ekki aldur til að fullgera verkið og var nemandi hans, Franz Xavier Süssmayr að nafni, fenginn til að ljúka við það. Sagan segir að kvöldið fyrir andlátið hafi tónskáldið kallað á þrjá vini sína til þess að syngja með sér það sem hann hafði þegar skrifað. Eftir fyrstu átta taktana í Lacrimosa- kaflanum svokallaða brast Mozart í grát, honum var orðið ljóst að tónsmíðinni yrði ekki lokið. Hann lést þá um nóttina. Morgunblaðið |