Gefur bækur úr tilhugalífinu

Jónína Leósdóttir afhenti bókasafni Samtakanna 78 bækur sem hún sankaði …
Jónína Leósdóttir afhenti bókasafni Samtakanna 78 bækur sem hún sankaði að sér í tilhugalífi hennar og Jóhönnu Sigurðardóttur.

Jónína Leósdóttir, höfundar bókarinnar Við Jóhanna sem hlotið hefur frábærar viðtökur undanfarnar vikur, afhenti í dag bókasafni Samtakanna '78 ríflega 40 erlendar bækur úr safni sínu.

Um er að ræða skáldsögur á ensku sem Jónína sankaði að sér á fyrstu árum sambands síns og Jóhönnu Sigurðardóttur en allar fjalla þær á einn eða annan hátt um samkynhneigð. Segir Jónína bækurnar hafa verið sér ákveðinn áttavita á þeim tíma þegar íslenskt samfélag bauð ekki upp á margar opinberlega samkynhneigðar fyrirmyndir.

Með bókagjöfinni vill Jónína láta bækurnar renna til blómlegs og sívaxandi bókasafns Samtakanna '78 en þar munu þær vonandi gagnast þeim sem áhuga hafa á að kynna sér skáldverk frá síðustu áratugum 20. aldar um og eftir samkynhneigðar konur.

Við Jóhanna er ein af mest seldu ævisögunum fyrir þessi jól og lýsir á hjartnæman og hrífandi hátt umrótatímum í lífi Jónínu og Jóhönnu, aðstæðum samkynhneigðra á Íslandi á seinni hluta 20. aldar og hvernig ástin sigraði að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál