Æsingur á sjóstöng við Grímsey

Ólafur Lárus Egilsson var ánægður með aflann. Ásbjörn Magnússon skipstjóri á Sundhananum frá Drangsnesi fylgist ... stækka

Ólafur Lárus Egilsson var ánægður með aflann. Ásbjörn Magnússon skipstjóri á Sundhananum frá Drangsnesi fylgist með. Ljósmynd/Unnur

mbl.is Eftir Egil Ólafsson

Þú hendir önglunum út í, dregur djúpt að þér ferskt sjávarloftið og bingó; það er kominn fiskur á færið. Já, það er frábær skemmtun að veiða þorsk á sjóstöng og ekki spillir fyrir að geta notið einstakrar náttúrufegurðar við Grímsey á Steingrímsfirði.

Sumir halda að það sé bara ein eyja við Ísland sem ber nafnið Grímsey, en það er misskilningur. Á Steingrímsfirði er líka að finna Grímsey, sem sumir segja að sé best geymda leyndarmál Strandanna. Í Grímsey er stærsta lundavarp í einni eyju við Ísland. Lundavarpið í Vestmannaeyjum er stærra, en það dreifist á nokkrar eyjur.

Eyjan er kennd við Grím Ingjaldsson sem kom í landaleit frá Noregi og hafði vetursetu í eyjunni. Í Grímsey var fyrrum býli og fram á 20. öld höfðu menn vetursetu á eyjunni og verbúðir. Refir voru um skeið í Grímsey á fyrri hluta 20. aldar. Yrðlingar voru fluttir út í eyjuna fyrri hluta sumars og sleppt þar, en síðan veiddir að vetrinum þegar skinnin voru fallegust og verðmætust. Fóður varð að flytja til refanna að einhverju leyti en annars fæddu þeir sig sjálfir.

Það er ekki síst lundinn sem dregur ferðamenn að Grímsey. Erlendir ferðamenn hafa gríðarlegan áhuga á lundanum og mynda hann bak og fyrir þegar þeir taka sér ferð með Ásbirni Magnússyni skipstjóra frá Drangsnesi sem hefur verið með daglegar ferðir út í Grímsey. Lundinn hverfur úr eyjunni í byrjun ágúst, en skarfaungarnir eru lengur í hreiðrum sínum og Ásbjörn siglir bát sínum, Sundhananum, alveg upp að hreiðrinu. Ungarnir eru orðnir vanir heimsóknum Sundhanans og kippa sér ekki upp við þó ferðamenn myndi þá í gríð og erg.

Þegar menn eru búnir að horfa nægju sína á fuglana í Grímsey er hægt að grípa sjóstöngina og renna fyrir þorsk. Fyrir þá sem hafa gaman af því að veiða, en hafa ekki þolinmæði til að sitja á árbakka tímunum saman í veikri von um að eitthvað bíti á, er sjóstangaveiði heppilegt sport. Maður er varla búinn að renna önglunum niður á botn þegar það er kominn þorskur á færið.

Með mér í för voru m.a. Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir og Urður Egilsdóttir en þær hafa ekki mikla reynslu af veiðiskap. Báðar ræddu um það áður en lagt var á haf út að þær treystu sér ekki til að drepa fiskinn. Allar efasemdir gleymdust fljótt þegar þorskurinn fór að bíta á og það var eins og eitthvert æði gripi þessar annars rólegu konur. Þær vildu helst ekki hætta þó að þorskarnir væru orðnir um 30 í karinu.

Allt gaman tekur enda. Ásbjörn renndi bátnum upp að litlu bryggjunni í Grímsey og gerði að fisknum með háseta sínum á meðan ferðamennirnir brugðu sér í land, drukku kaffi og skoðuðu sig um. Erfitt getur verið að ganga um eyjuna því hún er sundurgrafin af lundanum.

Það er ekki dýrt að fara á sjóstangaveiði frá Drangsnesi, ferðin kostar 3.000 krónur fyrir manninn. Þetta er ódýrt sérstaklega ef tekið er tillit til þess að þú getur farið heim með glænýjan þorsk sem dugar þér fram yfir jól.

Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir vildi helst ekki hætta að veiða. Ásbjörn hjálpaði henni að losa þorskinn af ...

Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir vildi helst ekki hætta að veiða. Ásbjörn hjálpaði henni að losa þorskinn af önglinum. Ljósmynd/Unnur

Þegar búið var að ná þorskinum um borð þurfti að blóðga og gera að aflanum.

Þegar búið var að ná þorskinum um borð þurfti að blóðga og gera að aflanum. Ljósmynd/Unnur

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
Í gær, 11:08 Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
í fyrradag Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
Í gær, 10:27 Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

sunnudagur | mánudagur | þriðjudagur

  • Egilsst.

    SSV7 6°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    VSV1 3°C

    Lítils háttar rigning
  • Akureyri

    SV5 6°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit