Laugavegur göngugata á morgun

Laugavegur verður lokaður fyrir umferð milli Frakkastígs og Bankastrætis. stækka

Laugavegur verður lokaður fyrir umferð milli Frakkastígs og Bankastrætis. Rax / Ragnar Axelsson

Laugavegurinn frá Frakkastíg og Bankastræti verður göngugata eftir hádegi laugardaginn 5. september og vonast er til þess að ökumenn geymi bifreiðar sínar ókeypis í bílahúsunum á meðan.

"Við viljum gefa fótgangandi meira rými og afslappaðra andrúmsloft til að njóta verslunar og menningarlífs á Laugaveginum," er haft eftir Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa úi tilkynningu frá borginni og að taki borgarbúar strikið á Laugaveginn á morgun „muni þeir upplifa bæði skemmtilega verslanir og lifandi tónlist þar að auki.“

Lokun Pósthússtrætis á góðviðrisdögum þykir hafa heppnast vel í sumar en það er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík. Skapaðist þá oft góð stemning gangandi á Austurvelli, segir í tilkynningunni og umhverfis- og samgönguráð ákveðið í kjölfarið að gera tilraun með að loka Laugaveginum í samráði við kaupmenn og íbúa.

Fram kemur að tvær kannanir voru gerðar á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs á Laugaveginum af þessu tilefni og kom þá meðal annars í ljós að 70-80% vegfarenda ganga götuna en aðeins rúmlega 20% keyra. Einnig kom í ljós að tæplega helmingur ökumanna á raunverulegt erindi á Laugaveginn, aðrir keyra flestir í gegn.

Lokað verður um klukkan 13.00 á morgun og síðar um daginn mun tónlist hljóma um götur. Gestir og gangandi geta búist við að heyra í Hjálmum, Ragnheiði Gröndal & Guðmundi Péturssyni, DÓRI DNA, Halla töframanni HELMUT und DALLA , Davíð Þór Jónsyni og Helga Svavari Svavarssyni. Kvennakórarnir Vox Feminae , Cantabile og Stúlknakór Reykjavíkur verða ennfremur á göngugötunni. Þau verða ýmist á Lækjartorgi, Skólavörðustíg og Laugvegi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
í fyrradag Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
í fyrradag Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

mánudagur | þriðjudagur | miðvikudagur

  • Akureyri

    VSV4 5°C

    Alskýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    V4 3°C

    Alskýjað
  • Bolungarvík

    SV5 5°C

    Lítils háttar rigning

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit