Fjölmennasta ferðakaupstefnan

Landmannalaugar stækka

Landmannalaugar mbl.is/RAX

Lang fjölmennasta ferðakaupstefna sem haldin hefur hér á landi verður sett í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 19 í kvöld. Forseti borgarstjórnar setur kaupstefnuna Mid-Atlantic 2010 en hún er haldin á vegum Icelandair í Laugardalshöllinni. Kaupstefnunni lýkur á sunnudag.

Ferðakaupstefnan er nú haldin í 18. sinn. Tilgangurinn er að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu til að viðhalda og auka ferðamannastraum til Íslands, samkvæmt tilkynningu frá Icelandair, og er talin vera árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni.

„Fulltrúar á Mid-Atlantic eru nú um 500 alls frá 14 löndum. Að þessu sinni koma mun fleiri fulltrúar erlendis frá en undanfarin ár, eða um 350. Þar af er von á um 150 kaupendum ferðaþjónustu frá Bandaríkjunum og Kanada, sem sýnir óvenju mikinn áhuga.

Hingað til lands eru komnir fulltrúar frá þeim löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku. Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt ferðamálaráð á norðurlöndum og ferðamálaráð þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku.

„Nú er mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt samfélag að aukast mjög og þess vegna er áríðandi fyrir okkur að halda ótrauð áfram og grípa þau viðskiptatækifæri sem eru undirstaðan í ferðþjónustunni. Aukinn áhugi erlendis frá er þess vegna mjög ánægjulegur. Þetta er einn helsti vettvangur fyrir íslenska ferðaþjónustu að selja og kynna sína vöru beint fyrir kaupendum.

En einnig eru hér t.d.bandarísk fyrirtæki að kaupa ferðaþjónustu frá Norður-Evrópu sem þeir síðan selja neytendum vestra og öfugt. Ísland er miðpunkturinn í öllu þessu starfi, líkt og í leiðarkerfi okkar, en á kaupstefnunni eru kynningarfundir, sölusýningar, stuttar ferðir og þemakvöld,“ segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair,“ að því er fram kemur í fréttatilkynningu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Vörður tryggir fasteignir ríkisins

Frá undirritun samningsins. Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs ...
09:53 Tryggingafélagið Vörður gekk nýverið frá samningi við ríkið um brunatryggingar vegna allra fasteigna þess samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en fasteignir ríkisins eru tæplega 1200 talsins. Meira »

Stefán Snær: 100 ára íþróttasaga

Stefán Snær Konráðsson
09:22 „Það var stór dagur, ekki aðeins í íslenskri íþróttasögu heldur í Íslandssögunni allri, þegar framsýnir menn ákváðu að stofna Íþróttasamband Íslands 28. janúar árið 1912," segir Stefán Snær Konráðsson í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Enginn var í bílnum

Frá Vífilsstaðavatni í morgun.
09:32 Enginn var í bílnum, sem fannst í Vífilsstaðavatni um níu leytið í morgun. Lögregla og slökkvilið leita nú af sér allan grun í vatninu og umhverfis það. Meira »

Bíll á kafi í Vífilsstaðavatni

Frá Vífilsstaðavatni í morgun
09:05 Kafarar voru sendir að Vífilsstaðavatni um klukkan níu í morgun, en vegfarandi tilkynnti um bíl í vatninu. Ekki er vitað hvort einhver er inni í bílnum. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit