Flugfélögin bæta sig

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar mbl.is/Helgi Bjarnason

Níu af hverjum tíu brottförum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli, á fyrri hluta þessa mánaðar, voru á tíma. Hjá Iceland Express stóðst nærri helmingur ferðanna áætlun samkvæmt stundvísitölum Túrista.

Þetta er mikil framför hjá báðum félögum og mjög áhugaverð í tilviki Iceland Express því í júní var innan við fimmta hvert flug á tíma, að því er segir í frétt á vef Túrista.

„Það er þó mikill dagamunur á áreiðanleika félagsins. Suma daga fara og koma flestar flugferðir á tíma en aðra daga eru tafirnar miklar. Meðalbiðin er því enn töluverð eða 26 mínútur á meðan hún er fimm mínútur hjá Icelandair. Frammistaða Icelandair á fyrrihluta ágústmánaðar er á við það sem best gerist í fluggeiranum því líkt og Túristi sagði frá í byrjun mánaðarins þá er 85 til 90 prósent stundvísi á við það sem áreiðanlegustu flugfélög í Evrópu ná,“ segir á vef Túrista.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Leifsstöð ein fallegasta flugstöðin

Úr Leifsstöð.
15.5. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er talin upp með níu öðrum á ferðavefnum Frommers sem ein af fallegustu flugstöðvum heims. Henni er lýst sem lítilli og huggulegri flugstöð sem lítur út eins og hún hafi verið pöntuð í IKEA. Meira »
Flugfarþegar sækja í frítt net

Flugfarþegar sækja í frítt net

Sífellt fleiri kaupa sér far með norska lággjaldaflugfélaginu. Farþegarnir borga ekkert fyrir að komast á netið um borð Meira
Herferð gegn handfarangri

Herferð gegn handfarangri

Öryggisverðir á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi stoppa alla þá sem ætla með of mikinn handfarangur um borð Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

fimmtudagur | föstudagur | laugardagur

  • Bolungarvík

    SSV2 9°C

    Skýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    SSV3 11°C

    Skýjað
  • Stykkishólmur

    SSV5 11°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit