Keflavík vinsæll áfangastaður
Í sumar flugu nærri 142 þúsund farþegar á milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur. Þetta er aukning um sjö prósent frá því í fyrra og mesti fjöldi á þessari flugleið síðan sumarið 2008 samkvæmt tölum frá Kaupmannahafnarflugvelli.
Aðeins níu aðrir flugvellir geta státað af meiri vinsældum meðal flugfarþega á Kastrup. En Keflavík komst ekki á topp tíu listann í fyrra, segir í frétt á vefnum Túrista.
Hafa ber í huga að farþegarnir eru taldir þegar þeir lenda og líka þegar þeir fara, og öfugt. Eru því sennilega velflestir tvítaldir.
Athugasemdir:
Flugfarþegar sækja í frítt net
Herferð gegn handfarangri
Besta veðrið næstu daga
fimmtudagur | föstudagur | laugardagur
-
Bolungarvík
SSV2 9°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSV3 11°C
-
Stykkishólmur
SSV5 11°C













Skráðu þig inn