Færri gista í tjaldi á Akureyri

Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti

Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti mbl.is/Hjálmar

Talsverð fækkun varð á fjölda gistinátta á tjaldsvæðunum á Akureyri nú í sumar, en þeim fækkaði alls um tæplega 7.400 á milli ára. Gistinætur urðu samtals um 34.300 á móti um 41.700 á síðasta ári.

„Þess ber þó að geta að árið 2010 var metár í fjölda gistinátta á tjaldsvæðum bæjarins," segir Tryggvi Marinósson, framkvæmdastjóri Útilífsmiðstöðvarinnar á Hömrum, í viðtali við Vikudag. 

Hann segir að fækkun hafi orðið í öllum mánuðum sumarsins en mest í júní, þá fækkaði þeim um tæplega 4.800, í júlí nam fækkunin um 1.500 gistinóttum og í ágúst um 700. Gistinóttum Íslendinga fækkaði samtals um 10.500 en á móti kom fjölgun erlendra gesta um 3.100. „Þessa fækkun má trúlega rekja til kulda í byrjun sumars en við urðum einnig áþreifanlega vör við áhrif af háu eldsneytisverði. Vegna kalskemmda og bleytu var tjaldsvæðið við Þórunnarstræti ekki opnað fyrr en 21. júní sem er rúmlega tveimur vikum seinna en venjulega. Vegna aðgerða við að bæta úr skemmdunum og vegna þess að sumarið var hæfilega rakt þá náði grasið sér furðu vel en þó eru víða stórir blettir sem þarfnast frekari lagfæringa," segir Tryggvi í viðtali við Vikudag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Leifsstöð ein fallegasta flugstöðin

Úr Leifsstöð.
15.5. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er talin upp með níu öðrum á ferðavefnum Frommers sem ein af fallegustu flugstöðvum heims. Henni er lýst sem lítilli og huggulegri flugstöð sem lítur út eins og hún hafi verið pöntuð í IKEA. Meira »
Flugfarþegar sækja í frítt net

Flugfarþegar sækja í frítt net

Sífellt fleiri kaupa sér far með norska lággjaldaflugfélaginu. Farþegarnir borga ekkert fyrir að komast á netið um borð Meira
Herferð gegn handfarangri

Herferð gegn handfarangri

Öryggisverðir á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi stoppa alla þá sem ætla með of mikinn handfarangur um borð Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

fimmtudagur | föstudagur | laugardagur

  • Bolungarvík

    SSV2 9°C

    Skýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    SSV3 11°C

    Skýjað
  • Stykkishólmur

    SSV5 11°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit