Öryggishliðum fjölgað á Gatwick
Farþegar Iceland Express frá Lundúnum ættu að komast mun hraðar í gegnum öryggiseftirlit á Gatwick flugvelli, eftir að nítján ný öryggishlið voru tekin í notkun á flugvellinum í gær. Endurbæturnar kostuðu 8,1 milljarð króna og eru hluti af 218 milljarða króna heildarkostnaði við endurbætur á flugvellinum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Iceland Express.
„Í tilkynningu frá flugvallaryfirvöldum í Bretlandi segir að breytingarnar þýði að ekki eigi að taka meira en fimm mínútur að koma hverjum farþega í gegnum öryggiseftirlit flugvallarins. Um fimm þúsund farþegar geti farið í gegnum öryggishlið Gatwick á hverri klukkustund, eða 25 prósent fleiri en áður. Af nítján örygggishliðum eru tvö sérhönnuð til að afgreiða fjölskyldur með ung börn og fatlaða og önnur tvö eru ætluð farþegum sem greitt hafa sérstaklega fyrir meiri þjónustu," segir í tilkynningu Iceland Express.
Farþegar geta nú sjálfir skannað brottfararspjald sitt við komuna í öryggiseftirlitið, hvort sem brottfararspjaldið er á pappír eða í snjallsíma.
Fjölgun farþega á öllum áfangaleiðum Iceland Express fyrstu níu mánuði ársins er 25,4 prósent og fjölgun farþega í septembermánuði einum er 20,5 prósent. Það stefnir því í að farþegar félagsins fari í fyrsta skipti yfir hálfa milljón á ársgrundvelli og verði tæplega 600.000 á þessu ári, samkvæmt tilkynningu.
Athugasemdir:
Flugfarþegar sækja í frítt net
Herferð gegn handfarangri
Besta veðrið næstu daga
fimmtudagur | föstudagur | laugardagur
-
Bolungarvík
SSV2 9°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSV3 11°C
-
Stykkishólmur
SSV5 11°C













Skráðu þig inn