Kínverjar vilja ekki borga

stækka

Reuters

Um áramót gengu í gildi reglur sem kveða á um að öll flugfélög sem fljúga í Evrópu skuli tryggja sér losunarkvóta fyrir kolefnisútblástur. Flugrekendur með bækistöðvar utan álfunnar þurfa einnig að hafa kvóta ætli þeir að fljúga til Evrópulandanna. Kínversk flugfélög ætla ekki að greiða fyrir kvótann. Greint er frá þessu á vefnum Túristi.

Í upphafi fá öll flugfélög 85 prósent af kvótanum gefins en á mánudaginn hóf bandaríska flugfélagið Delta að rukka farþega sína aukalega um þrjá Bandaríkjadali fyrir hverja ferð til og frá Evrópu. Það samsvarar um 750 íslenskum krónum fyrir þá sem bóka báðar leiðir. Delta flýgur milli Keflavíkur og New York á sumrin.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Kanada, Indlandi og Kína hafa öll mótmælt þessu evrópska losunargjaldi og árangurslaust reynt að fá Evrópudómstólinn til að fella það niður. Í vikunni tilkynntu svo samtök fjögurra stærstu flugfélaga í Kína að þau myndu ekki borga gjaldið. Kínversku félögin verða því sektuð ef þau halda áfram flugi til Evrópu kvótalaus samkvæmt frétt BBC.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Leifsstöð ein fallegasta flugstöðin

Úr Leifsstöð.
15.5. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er talin upp með níu öðrum á ferðavefnum Frommers sem ein af fallegustu flugstöðvum heims. Henni er lýst sem lítilli og huggulegri flugstöð sem lítur út eins og hún hafi verið pöntuð í IKEA. Meira »
Flugfarþegar sækja í frítt net

Flugfarþegar sækja í frítt net

Sífellt fleiri kaupa sér far með norska lággjaldaflugfélaginu. Farþegarnir borga ekkert fyrir að komast á netið um borð Meira
Herferð gegn handfarangri

Herferð gegn handfarangri

Öryggisverðir á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi stoppa alla þá sem ætla með of mikinn handfarangur um borð Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

fimmtudagur | föstudagur | laugardagur

  • Bolungarvík

    SSV2 9°C

    Skýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    SSV3 11°C

    Skýjað
  • Stykkishólmur

    SSV5 11°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit