Hinn dæmigerði ferðamaður

Geysir í Haukadal umkringdur ferðamönnum. stækka

Geysir í Haukadal umkringdur ferðamönnum. mbl.is/RAX

Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vörur og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur!

Þetta kemur fram í frétt frá iðnaðarráðuneytinu.

Á árinu 2011 sóttu rúmlega 565 þúsund erlendir ferðamenn Ísland heim sem er 15,8% fjölgun frá fyrra ári. Mikilvægi ferðaþjónustunnar fer stöðugt vaxandi fyrir samfélagið og hún er komin á bekk með sjávarútveginum og stóriðjunni þegar kemur að sköpun gjaldeyristekna.

Ferðamálastofa birti nýlega niðurstöður könnunar sem framkvæmd var síðasta sumar meðal erlendra ferðamanna. Í henni kennir ýmissa grasa og með hæfilegri einföldun sem felst í því að taka ævinlega hæstu gildin í hverjum flokki má teikna upp mynd af hinum dæmigerða erlenda ferðamanni.

„Hjónin bandarísku ferðuðust á eigin vegum og þau notuðu Netið til að afla sér upplýsinga um land og þjóð. Það var íslensk náttúra og menning öðru fremur sem dró þau hingað. Þau leigðu sér bílaleigubíl og gerðu víðreist m.a. um Suðurland og voru dugleg að fara í sund og náttúruböð, auk þess sem þau skoðuðu sýningar, fóru í hvalaskoðun og í útreiðartúr. Hjónin eru vel menntuð og með laun í góðu meðallagi og á ferðalaginu vörðu þau tæplega 370.000 kr. í alls kyns vöru og þjónustu.

Það er skemmst frá því að segja að þau voru mjög ánægð með ferðina og það sem stendur upp úr er náttúran, Bláa lónið, Reykjavík og íslensk gestrisni. Það kemur því ekki á óvart að þau stefna að því að koma aftur hingað til lands,“ segir ennfremur í frétt iðnaðarráðuneytisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Leifsstöð ein fallegasta flugstöðin

Úr Leifsstöð.
15.5. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er talin upp með níu öðrum á ferðavefnum Frommers sem ein af fallegustu flugstöðvum heims. Henni er lýst sem lítilli og huggulegri flugstöð sem lítur út eins og hún hafi verið pöntuð í IKEA. Meira »
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira
Flugfarþegar sækja í frítt net

Flugfarþegar sækja í frítt net

Sífellt fleiri kaupa sér far með norska lággjaldaflugfélaginu. Farþegarnir borga ekkert fyrir að komast á netið um borð Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

fimmtudagur | föstudagur | laugardagur

  • Bolungarvík

    SSV2 9°C

    Skýjað
  • Kirkjubæjarkl.

    SSV3 11°C

    Skýjað
  • Stykkishólmur

    SSV5 11°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit