Nýtt met í fjölda ferðamanna
Aldrei fyrr hafa jafn margir ferðamenn komið til austurrísku borgarinnar Vínar og á síðasta ári. Alls fjölgaði ferðamönnum sem gistu í borginni um 5% á milli ára og tekjur hótela jukust um 10% á milli ára.
Alls voru gistinæturnar 11,4 milljónir talsins á tímabilinu janúar til nóvember í fyrra. Jukust tekjur hótelanna um 9,2% og námu 446,7 milljónum evra. Vitað er að fjölmargir lögðu leið sína til Vínar í desember enda borgin fræg fyrir jólamarkaði.
Formaður ferðamálaráðs Vínar, Norbert Kettner, segir að mest fjölgun hafi verið meðal Rússa, Asíubúa og íbúa Suður- og Mið-Ameríku.
Athugasemdir:
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Flugfarþegar sækja í frítt net
Besta veðrið næstu daga
fimmtudagur | föstudagur | laugardagur
-
Bolungarvík
SSV2 9°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSV3 11°C
-
Stykkishólmur
SSV5 11°C














Skráðu þig inn