Icelandair yfirleitt á áætlun
Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar.
Þrjár af hverjum fjórum flugferðum Icelandair til og frá landinu voru á réttum tíma á seinni hluta nýliðins mánaðar. Hjá Iceland Express var hlutfallið 57 prósent. Líkt og svo oft áður standast komutímarnir síður en brottfarartímarnir hjá fyrirtækjunum.
Bæði bættu sig þó á þeim vettvangi og sér í lagi Iceland Express því síðustu tvo mánuði hafa vélar fyrirtækisins sjaldan lent við Leifsstöð á réttum tíma. Núna er hlutfallið 53 prósent. Brottfarir Icelandair í Keflavík héldu áætlun í 85 prósentum tilvika, samkvæmt frétt á vef Túrista.
Tafir í mínútum talið voru lengri nú en undanfarin tímabil og munar þar mest um að öllu morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli var seinkað fram yfir hádegi hinn 26. janúar.
Iceland Express flýgur nú aðeins til London og Kaupmannahafnar og voru ferðirnar til og frá landinu tæplega fjörutíu síðari hluta janúar. Það var einn tíundi af fjölda ferða á vegum Icelandair á tímabilinu.
Athugasemdir:
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Flugfarþegar sækja í frítt net
Besta veðrið næstu daga
fimmtudagur | föstudagur | laugardagur
-
Bolungarvík
SSV2 9°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSV3 11°C
-
Stykkishólmur
SSV5 11°C













Skráðu þig inn