Sér tækifæri í öllum aðstæðum

Mynd 1 af 2
Elín María Björnsdóttir og einmaður hennar, Hrafnkell Pálmarsson með dæturnar tvær, Tinnu Margréti og Sigríði.

Elín María Björnsdóttir starfar sem Senior konsultant hjá Franklin Covey í Svíþjóð. Hún hefur starfað hjá Franklin Covery síðan í janúar 2011 en þar stýrir hún stóru verkefni fyrir grunnskóla ásamt því að vinna inni í fyrirtækjum. Hjá fyrirtækinu vinna 2.000 starfsmenn um heim allan. Stephen R. Covey fékk viðurkenningu Time tímaritsins sem einn af 25 áhrifamestu mönnum Bandaríkjanna. Hann skrifaði bókina, The 7 Habits of Highly Effective People, sem er ein af 10 áhrifamestu  stjórnunarbókum sem hafa verið gefnar út. Í könnun Chief Executive Magazine tímaritsins var bókin, The 7 Habits of Highly Effective People, nefnd sem ein af tveimur áhrifamestu viðskiptabókum 20. aldarinnar. BusinessWeek nefnir Stephen R. Covey sem einn af fimm eftirsóttustu fyrirlesurum heims.

Hvernig komstu þangað sem þú ert í dag? „Ég flutti til Svíþjóðar, en það var stærsta skrefið. Ég tók réttindi fyrir nokkrum árum i í Opna Háskólanum í Reykjavík til að geta kennt námskeið á vegum Franklin Covey. Eftir að ég flutti hingað komst ég í kynni við eigendur Franklin Covey hér í Svíþjóð og réð mig í fullt starf þar frá og með ágúst síðastliðnum en vann þar í hlutastarfi frá síðustu áramótum.“

Hvað er skemmtilegast við starfið? „Að hafa jákvæð áhrif á stjórnendur og starfsfólk skóla hér í Svíþjóð í gegnum verkefnið, The Leader in Me, sem ég stýri hér.“

En erfiðast? „Að vinna brautryðjendastarf á markaði þar sem tengslanetið er ekki eins stórt og á heimaslóðum. Svo getur verið svolítið snúið að halda fyrirlestra og námskeið dögum saman á öðrum tungumálum en móðurmálinu.“

Hver er munurinn á kvenkyns stjórnanda og karlkyns?  „Mér finnst munurinn frekar liggja í persónuleikanum sem stjórnar heldur en kyninu.“

Finnst þér að konur eigi að vinna meira saman til að koma sér á framfæri? „Mér finnst konur á Íslandi og víðar afskaplega duglegar í að standa saman um að koma sér á framfæri. Ég er þeirra skoðunar að við eigum öll að hjálpast að til að komast áfram en fyrst og fremst á verðleikum frekar en kyni.“

Hverjir eru þínir bestu eiginleikar?  „Að sjá ávallt möguleika og tækifæri í öllum aðstæðum, framkvæmdasemi, heilindi (geri það sem ég ætla mér) og trúi á að besta í hverri manneskju sem ég mæti.“

Hvað einkennir góðan stjórnanda?  „Skýr sýn sem hann kemur til skila til samstarfsfólks. Hrein og bein samskipti.  Hefur hæfileika til að fá fólk með sér. Hann sér möguleika og hæfileika í hverjum starfsmanni og kemur fram við hann á þann máta að starfsmaðurinn fer sjálfur að uppgötva þá hæfileika sem hann hefur og vissi e.t.v ekki af.“

Hver eru algengustu mistök sem konur gera á vinnumarkaði? „Oft skýra þær ekki hvaða markmiðum þær vilja ná né vinna markvisst að þeim – þær eru stundum hræddar að fara út fyrir þægindarammann.“

Skiptir tengslanet máli?  „Já tengslanet skiptir miklu máli. Því fylgir ákveðin tryggð fyrir manneskjuna að leita í það sem hún þekkir. Í okkar samfélagi kjósum við oft frekar að treysta fólki fyrir verkefnum/störfum sem við höfum góða reynslu af í staðinn fyrir að leita í hóp þeirra sem við höfum ekki reynslu af. Gott tengslanet hjálpar alltaf.
Ég upplifði það mjög sterkt þegar ég flutti á milli landa. Til að byrja með hafði ég ekkert tengslanet sem gerði það að verkum að hvert skref tók lengri tíma.“

Í hvaða starfi værir þú ef þú værir ekki í núverandi starfi? „Að vinna hjá annarri Franklin Covey-skrifstofu í heiminum að starfa með nákvæmlega það sama.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Finnst fegurðarsamkeppnir heimskulegar

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir með sonum sínum.
07:00 Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir á eftir að öskra á ítölsku á kjötgerðarmanninn í Róm, dansa með innfæddum í Afríku, baka brauð með konunum í Íran og ræða heimsmálin, synda með höfrungum í Ástralíu ... Meira »

Viltu verða yngri, grennri og ríkari?

11.5. Árelía Eydís Guðmundsdóttir segir að við eigum að horfa á jákvæðu hliðarnar í nýjasta pistli sínum:  Meira »

Elín Hirst veitir fjölmiðlaráðgjöf

Elín Hirst.
20.5. Elín Hirst fjölmiðlakona hefur gengið til samstarfs við Vendum - stjórnendaþjálfun.  Meira »

Segðu það sem þú hugsar

Unnur Valborg Hilmarsdóttir.
2.5. Hversu oft hugsum við fallega til einhvers, dáumst að einhverju í huganum en færum þessar fallegu hugsanir ekki í orð?  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is