Innri kviðfita hættulegri en ytri

stækka

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Ágústa Johnson spáir í bumbu og kviðspik í nýjasta pistli sínum. Hún bendir á að kviðspik auki líkur á alvarlegum sjúkdómum.
„Ástarhöldin geta í raun verið hættuleg heilsunni. Algengt er að þeir sem safna mikilli fitu um sig miðja, bæði konur og karlar, safni einnig mikilli innri kviðfitu. Hún er talin mun hættulegri en fitan sem sest undir húðina. Innri kviðfita er sú tegund fitu sem safnast fyrir innan um líffærin og eykur líkurnar á alvarlegum sjúkdómum, t.d. of háum blóðþrýstingi, sykursýki og hjartasjúkdómum, en á Íslandi deyr ein kona og einn karlmaður að meðaltali á dag af völdum hjartasjúkdóma. Kyrrsetufólk og þeir sem reykja eru mun líklegri til að safna á sig innri kviðfitu en þeir sem hreyfa sig reglulega og eru reyklausir. Streita er einnig talin vera áhættuþáttur í aukinni innri kviðfitu,“ segir Ágústa í nýjasta pistil sínum. 

„Þó að þú passir enn í sömu gallabuxurnar og þegar þú varst 18 er alls ekki víst að þú sért með fitusnauðan innri kvið. Rannsóknir sýna að fólk sem er grannvaxið en stundar ekki þjálfun er gjarnan með talsverða innri fitu en telur sér oft trú um að sú sé ekki raunin, það sé í fínu líkamlegu formi. Það er nefnilega ekki endilega samasemmerki á milli þess að vera grannur og að vera með heilbrigðisvottorðið í toppstandi.“

HÉR er hægt að lesa pistilinn í heild.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Himnesk plankaæfing

Anna Eiríksdóttir.
10:00 Anna Eiríksdóttir leikfimisdrottning elskar plankaæfingar. Hér er hún með vandaða æfinga-lotu sem reynir á handleggi, mjaðmir og mitti. Meira »

Lifir þú í jafnvægi?

Þorbjörg Hafsteinsdóttir.
í gær Þú getur komist að því hvort líf þitt er í jafnvægi eða ekki. Taktu prófið og þá sérðu í hvernig ástandi þú ert.   Meira »

Meinhollar súkkulaðikökur Þorbjargar

Þorbjörg Hafsteinsdóttir.
Í gær, 15:00 Gómsætar súkkulaðikökur þurfa alls ekki að vera stútfullar af sykri og óhollustu. Hér kemur uppskrift sem klikkar ekki.   Meira »

Hentu sykrinum út myndskeið

9 Leidir Jafnvagi
í fyrradag Þorbjörg Hafsteinsdóttir segir að við þurfum alls ekki á sykri að halda ef við ætlum að lifa í jafnvægi.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is