Ungstirnið og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner hefur fest kaup á nýju húsi, en leikarahjónin John Krasinski og Emily Blunt seldu fyrirsætunni húsið.
Glæsihýsið stendur í Hollywood Hills. Það kostaði litlar 6,5 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar tæpum 800 milljónum íslenskra króna.
Húsið er að sjálfsögðu hið glæsilegasta, en þar er að finna sex svefnherbergi, fimm baðherbergi og að sjálfsögðu sundlaug í garðinum.
Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail.