Leikarinn Johnny Depp hefur sett hús sitt í Feneyjum á sölu. Húsið stendur við Grand Canal-skurðinn í Feneyjum og er falt fyrir rúma 1,3 milljarða króna.
Það var ítalska dagblaðið Affari Italiana sem greindi fyrst frá sölunni en talið er að hún tengist skilnaði hans og Amber Heard. Heard hefur ásakað Depp um heimilisofbeldi og fengið á hann nálgunarbann.
Húsið, sem ber nafnið Palazzo Donà Sanguiantoffetti, keypti Depp árið 2011 eftir að tökum á myndinni „The Tourist“ lauk. Depp varð afar hrifinn af svæðinu og festi kaup á húsinu. Húsið er fjórar hæðir en í því eru sjö baðherbergi og níu svefnherbergi. Þá fylgir einkahöfn eigninni.