Sjáið hús Legend og Teigen

Legend og Teigen gerðu húsið upp sjálf.
Legend og Teigen gerðu húsið upp sjálf. samsett

Fyrrverandi hús poppsöngvarans John Legend og konu hans, fyrirsætunnar Chrissy Teigen, er nú á sölu fyrir rúmlega 250 milljónir íslenskra króna. 

Hjónin keyptu húsið árið 2007 og seldu það svo sjö árum seinna árið 2014. En á meðan þau áttu það tóku þau húsið og garðinn alveg í gegn og gerðu það upp. 

Húsið er með þremur svefnherbergjum og baðherbergjum og er öll hönnun innanhúss eins og hún var þegar Legend og Teigen seldu það. Einnig er í húsinu glæsilegt upptökuhljóðver sem Legend hannaði sjálfur.

Garðar hússins eru með asískum blæ með fossum og grænum plöntum sem skapa kyrrð og ró yfir öllu saman. Það er ótrúlegt að þessi eign sé í miðju stórborgarinnar Los Angeles þar sem húsið virðist einangrað frá umheiminum. 

Hér eru myndir af fyrrverandi húsi stjörnuparsins. 

skjáskot/Zillow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál