Lítið og sætt hjá Nicole Kidman

Nicole Kidman og Keith Urban eru að reyna að losa …
Nicole Kidman og Keith Urban eru að reyna að losa sig við þetta krúttlega hús í Tennessee. Samsett mynd

Nicole Kidman hefur sett lítið og krúttlegt hús sitt á sölu en húsið stendur rétt fyrir utan Nashville í Tennessee. Húsið þykir reyndar bara nokkuð rúmgott fyrir flesta en Kidman á þó önnur hús sem eru stærri. 

Reyndar þurfa Kidman og eiginmaður hennar Keith Urban ekki að taka hús á leigu til þess að dvelja í Nashville enda eiga þau annað hús þar, sem er meira en helmingi stærra en þetta. 

Húsið er nokkuð látlaust bæði að utan sem og innan en Kidman fjárfesti í húsinu árið 2007 samkvæmt Variety. Nú vill hún fá um 360 milljónir íslenskra króna fyrir húsið. Sá sem kaupir húsið þarf ekki að kvíða því að þurfa keyra langar leiðir í ræktina enda pláss fyrir nokkuð fína líkamsrækt í húsinu eins og sést.  

ljósmynd/French King Fine Properties
ljósmynd/French King Fine Properties
ljósmynd/French King Fine Properties
ljósmynd/French King Fine Properties
ljósmynd/French King Fine Properties
ljósmynd/French King Fine Properties
ljósmynd/French King Fine Properties
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál