Við Haðaland 12 í Fossvogi stendur glæsilegt 309 fm einbýli sem byggt var 1971. Húsið hefur að geyma sjarma þess tíma sem það var byggt og hefur verið vandað til allra verka.
Húsið var teiknað af Helga og Vilhjálmi Hjálmarssonum arkitektum og eru allar innréttingar einnig teiknaðar af þeim í samvinnu við innanhússarkitektinn Finn Fróðason.
Grunnskipulag hússins er mjög vel heppnað. Eignin skiptist í anddyri, snyrtingu, hol, stofu, húsbóndaherbergi, borðstofu, eldhús, búr og þvottahús með bakdyrainngangi, þrjú barnaherbergi, baðherbergi og síðan hjónaherbergi með innbyggðum skápum og baðherbergi innaf.
Í kjallara er opið rými með dagsbirtu sem er ekki innréttað og í þessu rými eru líka geymslur.