Þessi fáránlega girnilega kaka er aðeins fyrir allra mestu sælkerana þarna úti. Hérna eru hlutirnir teknir á næsta stig enda inniheldur kakan smákökudeig, oreo-kex og brownie-köku. Uppskriftin af þessari þriggja hæða snilld kemur af heimasíðunni KevinAndAmanda.com.
Hráefni:
Kökudeig
- 1 bolli smjör, mjúkt
- 1 bolli sykur
- 3/4 bolli púðursykur
- 2 stór egg
- 1 matskeið vanilludropar
- 2 1/2 bollar hveiti
- 1 teskeið matarsódi
- 1 teskeið salt
- 2 bollar súkkulaðibitar
Miðjan
1 pakki Oreo-kex
Brownie-kaka
1 pakki Betty Crocker brownie-blanda +egg og olía (eftir leiðbeiningum á pakka)
Aðferð:
- Forhitaðu ofninn í 180°C. Settu bökunarpappír í stórt eldfast mót.
- Kökudeig: Blandaðu smjörinu, sykrinum og púðursykrinum saman með þeytara í tvær til þrjár mínútur. Bættu eggjum og vanilludropum saman við og hrærðu áfram. Í annarri skál, hrærðu hveiti, matasóda og salti saman. Sameinaðu þá innihald skálanna varlega. Hrærðu í deiginu með sleif og bættu súkkulaðibitunum út í deigið.
- Settu deigið í botn eldfasta mótsins. Raðaðu svo Oreo-kexinu ofan á kökudeigið. Útbúðu brownie-deigið samkvæmt leiðbeiningum umbúðanna. Helltu þá brownie-deiginu ofan á kökudeigið og oreo-kexið. Þá er kökunni skellt inn í ofn og hún bökuð í um 45-55 mínútur. Látið kökuna kólna alveg áður en hún er skorin niður í hæfilega stórar sneiðar.
Kakan bragðast vel með ís og heitri karamellu- eða súkkulaðisósu. Þetta gæti alveg eins verið girnilegasta kaka í heimi!
Kakan er á þremur hæðum.
www.kevinandamanda.com