Það verður að viðurkennast að sum pör líta betur út saman en önnur. Til þess að ná þeim titli að flokkast sem ofurpar líkt og Beyonce og Jay Z og George og Amal Clooney er ekki nóg að vera bara hamingjusöm og lifa heilbrigðu líferni. Til þess að flokkast sem ofurpar þurfið þið að ná svo rosalega vel saman að þið lítið út fyrir að geta náð heimsyfirráðum. Hér eru átta merki sem vefurinn Glamour tók saman sem gefa það í skyn að þú og maki þinn séuð á hraðri leið í að verða ofurpar e. powercouple.
1. Þið hafið upplifað erfiða tíma saman
Hvort sem að annað ykkar missti vinnuna eða einhvern nákomin féll frá hafið þið upplifað sorgina saman og komið sterkari út úr henni.
2. Þið er alltaf í vinalegri samkeppni við hvort annað
Þið keppist um allt á milli himins og jarðar, frá því að sjá hver nái að hlaupa hraðar upp stigann heim í það hver nái betri tíma í maraþoni. Vinaleg keppni kveikir ástríðu í sambandinu.
3. Vinir ykkar fara hjá sér þegar þeir sjá ykkur saman
Vinir ykkar fara hjá sér þegar þeir sjá ykkur saman því að þið eruð það fullkomin fyrir hvort annað.
4. Framtíðin snýst um ykkur en ekki þig
Þó svo að þið séuð ekki trúlofuð eruð þið búin að ákveða framtíð ykkar saman, hvernig þið sigrið heiminn saman.
5. Þið eru aldrei vandræðaleg við hvort annað
Þið getið rætt allt saman og ekkert er of vandræðalegt til að ræða. Það sem annað fólk forðast að ræða getið þið rætt án alls vesens.
6. Þið styðjið hvort annað
Þið styðjið tryggilega við bakið á hvort öðru. Allt frá því að kæta makann vegna þess að hann er í vondu skapi yfir í það að elda fimm stjörnu máltíð því að makinn fékk stöðuhækkun.
7. Þið eigið enn ykkar persónulega líf
Þið eruð góðir vinir en deilið samt ekki öllu saman. Þú ferð enn og hittir vini eða vinkonur þínar til að ræða málin og gera eitthvað tryllt.
8. Þið hrósið hvort öðru
Saman getið þið sigrast á heiminum. Þið þorið að hrósa hvort öðru fyrir vel unnin störf og eruð ánægð saman.