Kærastinn þráir trekant

Marga karlmenn dreymir um að gamna sér með tveimur bólfélögum …
Marga karlmenn dreymir um að gamna sér með tveimur bólfélögum í einu. Ljósmynd / Getty Images

„Kæra E. Jean, í fyrsta fríinu okkar saman játaði kærastinn minn mér ást sína. Næstum því á sama augnabliki sagðist hann gjarnan vilja horfa á mig stunda kynlíf með einhverjum öðrum og stakk upp á gengilbeinu sem starfar í nágrenni við heimili hans. Ég ætti að taka það fram að við vorum að njóta ásta – og vorum raunar í miðjum klíðum – þegar hann lét orðin falla.“ Á þessum orðum hefst fyrirspurn ungrar konu sem leitaði ráða hjá sérlegum ráðgjafa tímaritsins Cosmopolitan, enda ekki ánægð með betri helminginn.

„Daginn eftir sagði ég honum að ég elskaði hann, en bætti við að það sem hann stakk upp á væri ekki fyrir mig. Hann sagði að hann vildi aldrei gera mig óörugga. Viku síðar, þegar við vorum að stunda kynlíf, sagði hann að hann vildi að gengilbeinan á matsölustaðnum sem við vorum nýbúin að snæða á væri að horfa á okkur. Hvað er eiginlega málið með þennan gaur og gengilbeinur?“

 Ráðgjafinn, E. Jean, er bæði með munninn fyrir neðan nefið og ráð undir rifi hverju. Hún var því ekki lengi að finna ráðleggingar fyrir konuna.

„Hæ, ég er E. Jean og ég verð gengilbeinan þín í kvöld. Má ég skenkja þér kampavín?

Forréttur: Fylltur þöngulhaus á kálbeði
Þú sagðir kærastanum að hætta þessu. Hann hunsaði þig og hrópaði upp yfir sig í leit að gengilbeinu – á ný. Ég held við getum öll verið sammála um að hann er aulabárður.

Aðalréttur: Blábjáni með soðsósu
Á hinn bóginn, ef þú myndir spyrja hvaða kærasta sem er hvort hann væri til í að gamna sér með kærustunni og gengilbeinu, og þeir þyrftu að svara sannleikanum samkvæmt, væru svörin líklega öll á sama veg.

Eftirréttur: Sírópsleginn fáráðlingur
Að sjálfsögðu vill kærastinn þinn fara í trekant með gengilbeinu. Ég ætla þó að ljúka máli mínu með þessu ráði. Segðu kærastanum þínum að þetta sé í síðasta skipti sem þú ætlir þér að ræða þetta, og þú sért búin að fá þig fullsadda af uppástungum hans sem eru leiðingjarnar, særandi og tillitslausar. Bættu svo við að ef hann minnist á gengilbeinu á ný sé hann búinn að vera.

Pistilinn í heild sinni má lesa hér.

Kærastinn þykir sýna gengilbeinum heldur til mikinn áhuga.
Kærastinn þykir sýna gengilbeinum heldur til mikinn áhuga. Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál