8 kynlífsupplifanir sem allir þurfa að prufa

Það er gott að stunda kynlíf í fríi.
Það er gott að stunda kynlíf í fríi. mbl.is/Thinkstockphotos

Það er ekkert að því að stunda sama venjulega kynlífið oft en það eru hins vegar nokkrar kynlífsupplifanir sem enginn ætti að missa af að mati Women‘s Health. Það sem betra er, það er hægt að endurskapa upplifunina.

Kynlíf á brúðkaupsnóttu

Á búðkaupsnóttinni er fólk sérstaklega hamingjusamt. Það gerir það að verkum að adrenalínflæðið er mjög mikið. Með því að endurskapa stemmninguna geturðu upplifað þetta aftur og átt öðruvísi kynlíf en venjulega.

Ég er komin heim kynlíf

Eftir að hafa verið í burtu lengi er ekkert betra en að stunda gott kynlíf. Öll löngunin sem átti sér stað meðan á aðskilnaðinum stóð brýst út í kynlífinu.

Kynlíf eftir rifrildi

Við rifrildi hækkar testósterónið í bæði konum og körlum. Aukið testósterónið eykur kynlífslöngunina. Ef pör rífast ekki mikið er hægt að endurskapa rifrildi eða einfaldlega gera eitthvað sem veldur samkeppni.

mbl.is/Thinkstockphotos

Sambandslokakynlíf

Þegar fólk hættir saman vegna þess að samband er ekki að virka endar það á að stunda tilfinningaþrungið kynlíf. Oft er þetta kynlíf betra en fólk stundaði á síðustu mánuðum fyrir sambandsslitin. Sumir vilja meina að þetta sé vegna þess að þú vilt skilja við maka þinn þannig að hann þrái þig.

Afmæliskynlíf

Afmælisbarn á að þiggja gjafir á afmælinu sínu. Það fer því ekki milli mála hver er að gefa og hver er að þiggja á afmælisdeginum þínum. Engin pressa er á afmælisbarninu. Það er auðvitað hægt að endurskapa afmælisdaga, hver segir að það sé ekki hægt að eiga afmæli 365 daga á ári?

Kynlíf í ferðalagi

Að stunda kynlíf á nýjum og framandi stað er meira spennandi en heima hjá manni. Nýr staður getur verið æsandi og fólk gerir hluti sem það gerir ekki endilega heima hjá sér.

mbl.is/Thinkstockphotos.

Kynlíf í fyrsta skipti með maka

Það er spennandi að stunda kynlíf í fyrsta skipti með nýjum maka vegna þess þú ert að upplifa allt í fyrsta skipti og kynnast makanum. Öll skynfærin eru sérstaklega viðkvæm. Til þess að endurskapa þetta er hægt að hafa bundið fyrir augun.

Við skulum eignast barn-kynlíf

Mörg pör finna fyrir sérstökum og áköfum tengslum þegar þau stunda kynlíf eftir að hafa ákveðið að reyna að eignast barn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál