Það eru eflaust margir sem velta fyrir sér hversu lengi fólk stundar kynlíf en það fer að sjálfsögðu eftir aðstæðum og tilefni. Kynlífsleikfangasalinn Lovehoney gerði rannsókn á meðal viðskiptavina sinna og fann út að kynlíf hjá gagnkynhneigðu pari tekur að meðaltali 19 mínútur.
4.400 manns tóku þátt í rannsókninni og kom í ljós að fólk stundaði forleik að meðaltali í tíu mínútur og samfarir í níu mínútur. 52% aðspurða sögðust vera sátt við lengdina en 23% karlmanna og 29% kvenna vildu stunda kynlíf lengur.
Samkvæmt mydomaine.com eru þessar tölur töluvert hærri en til dæmis könnun frá árinu 2008 þar sem kynlífi sem er lýst allt í lagi tók þrjár til sjö mínútur og kynlíf sem er lýst sem mjög góðu tók sjö til 13 mínútur.