Getur ekki hætt með unga framhjáhaldinu

Konan heldur fram hjá eiginmanni sínum með yngri manni.
Konan heldur fram hjá eiginmanni sínum með yngri manni. mbl.is/Thinkstockphotos

Kona sem er búin að vera gift í 25 ár leitaði til Deidre, ráðgjafa The Sun, vegna þess að hún getur ekki hætt að halda fram hjá með ungum ástmanni sínum.

Ég og eiginmaður minn vorum góð saman í mörg ár og nutum þess að stunda kynlíf en síðustu ár hafa ekki verið sérstaklega góð. Eiginmaður minn drekkur mikið og það hefur haft áhrif á kynlöngunina. Hann hefur ekki áhuga þessa dagana. Ég er 45 ára og hann er fimmtugur og við ákváðum að eiga engin börn.

Við erum bæði framafólk en við höfum þroskast frá hvort öðru. Ég stjórna deild í fyrirtækinu sem ég vinn hjá og á síðasta ári réð ég nýjan starfsmann. Hann er 22 ára og er mjög áhugasamur um að standa sig vel í vinnunni. Hann spurði mig hvort ég gæti leiðbeint sér, haft auga með vinnunni sinni og sagt sér ef hann væri að gera eitthvað rangt.

Við urðum náin og byrjuðum að daðra. Við vorum að vinna seint eitt kvöldið og hann opnaði sig fyrir mér. Hann sagði mér í trúnaði að hann elskaði ekki kærustuna sína lengur og þau stunduðu aldrei kynlíf. Ég stakk upp á hlutum sem hann gæti prófað en hann sagði að það eina sem hann vildi væri að stunda kynlíf með mér. Ég gat ekki staðist mátið og það var yndislegt. Við höfum brugðið á leik hvenær sem við getum síðan þá.

Við höfum stundum búið til afsakanir til þess að komast út af skrifstofunni eftir hádegi svo við getum farið heim til hans og stundað kynlíf. Hann segir að hann sé ástfanginn af mér og hann sé að stunda besta kynlíf sem hann hefur stundað með mér. Ég veit að þetta mun ekki leiða til neins en ég get ekki neitað honum af því mig langar í frábært kynlíf rétt eins og hann.

Eiginmaðurinn minn veit ekkert um framhjáhaldið en hann hefur verið að reyna að bæta sig og drekkur sjaldan. Ég veit að ég verð að hætta framhjáhaldinu. Mér líður illa yfir þessu og óska þess að þetta hafði aldrei byrjað.

Deidre bendir konunni á að þrátt fyrir að ungi maðurinn hafi sagt að hann elskaði ekki kærustuna sína þá er hann enn þá með henni.

Þú ert föst í framhjáhaldinu vegna frábærs kynlífs sem þú ert ekki fá hjá eiginmanni þínum. Svo þetta er það sem þarf að breytast. Segðu eiginmanni þínum að þú hafir áhyggjur yfir því að þið hafið þroskast í sundur en þú hefur tekið eftir því að hann sé að reyna bæta sig og þú viljir gera hið sama. Segðu ástmanni þínum að framhjáhaldið verði að hætta. Hann verður annaðhvort að bæta samband sitt eða enda það svo hann geti fundið einhverja rétta fyrir sig.

Kynlífið heldur þeim saman.
Kynlífið heldur þeim saman. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál