Tók hann aðeins viku að finna nýja menn

Maðurinn eyðilagði gott samband með því að kyssa annan mann.
Maðurinn eyðilagði gott samband með því að kyssa annan mann. mbl.is/Thinkstockphotos

Karlmaður leitaði ráða hjá Deidre ráðgjafa The Sun eftir að hann sá að fyrrverandi kærastinn vingaðist við nýja menn. 

Kæra Deidre, kærastinn minn hætti með mér eftir að ég kyssti einhvern annan. Ég er 26 ára samkynhneigður maður og hann er 28 ára. Við vorum saman í níu mánuði og allt var frábært þangað til ég drakk of mikið á skemmtistað og kyssti annan mann. 

Kærastinn minn varð brjálaður. Ég bað hann um að bíða í mánuð áður en hann færi að hitta einhvern annan. Það er hins vegar aðeins ein vika liðin og ég sé að það eru tíu nýir gæjar á Facebook-inu hans. Það er svo sárt. 

Deidre bendir honum á að höfnun sé særandi og það hjálpi ekki til að sjá nýju vinina á Facebook. 

Gerðu sjálfum þér greiða og fjarlægðu hann af Facebook-síðu þinni. Reyndu að halda þér uppteknum, ekki sitja bara í símanum. Ef hann sér að þú ert að halda áfram með líf þitt er hann líklegri til að hugsa um hvað hann hefur misst en gæti verið of seinn. 

Kærastinn beið ekki í mánuð.
Kærastinn beið ekki í mánuð. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál