Meira að segja Beyoncé skammast sín fyrir mömmu sína

Beyoncé er ósköp venjuleg dóttir sem skammast sín fyrir móður …
Beyoncé er ósköp venjuleg dóttir sem skammast sín fyrir móður sína. mbl.is/AFP

Börn eiga það til að skammast sín fyrir foreldra sína. Þetta er algengt vandamál foreldra út um allan heim, meira að segja poppdrottningin Beyoncé skammast sín fyrir móður sína Tinu Knowles. 

Knowles segir að ef börnin hennar hefðu fengið að ráða væri hún ekki á Instagram, í rauninni væri hún ekki á neinum samfélagsmiðlum. Knowles greindi frá því að hún ætti það til að byrja fyrir slysni með beina útsendingu á Instagram. 

„Ég geri mistök en ég er bara ósvikin hvað það varðar. Það er það sem 60 ára gamlar mæður gera á samfélagsmiðlum,“ sagði Knowles og bætir því við að allir geti tengt við þetta. 

Knowles er með tæpa eina og hálfa milljón fylgjenda á Instagram en það var maðurinn hennar sem hvatti hana til að lifa lífinu eins og hún vildi. Hún segir að maðurinn sinn hafi spurt sig af hverju hún væri alltaf að fela sig. „Það er kominn tími til að þú lifir lífinu,“ sagði hann við Knowles. 

A post shared by Tina Knowles (@mstinalawson) on Oct 20, 2017 at 11:56am PDT

Tina Knowles og Richard Lawson eginmaður hennar.
Tina Knowles og Richard Lawson eginmaður hennar. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál