Launaviðtalið endaði með kynlífi

Maðurinn fékk kynlíf í bónus.
Maðurinn fékk kynlíf í bónus. mbl.is/Thinkstockphotos

Maður sem svaf hjá yfirmanni sínum leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun

Kæra Deidre, ég var lengur í vinnunni til þess að biðja yfirmann minn um launahækkun og einhvern veginn endaði það með því að við stunduðum villt kynlíf á skrifstofunni. 

Ég vinn fyrir alþjóðlegt fyrirtæki og þessi kona hefur verið yfirmaður minn í þrjú ár. Ég er 22 ára gamall karlmaður og hún er 31 árs. Ég vann mig upp af botninum og veit að ég stend mig vel í vinnunni. 

Upp á síðkastið hef ég tekið á mig meiri ábyrgð þannig að pabbi minn sagði að það væri kominn tími til að biðja um hærri laun. Einn dag í síðasta mánuði beið ég þangað til að allir voru farnir heim áður en ég talaði við yfirmann minn. Hún stakk upp á því að við færum á skrifstofu til hennar til þess að tala um þetta. 

Ég útskýrði að mér þætti ég eiga skilið að fá launahækkun. Hún sagði að hún vildi ekki missa mig og samþykkti að hækka launin mín. Svo staðsetti hún sig fyrir aftan mig og setti hendurnar á axlir mínar. Hún beygði sig og kyssti höfuð mitt. Ég sneri mér við og allt í einu vorum við komin á fullt. Við stunduðum kynlíf á skrifstofugólfinu hennar og það var æðislegt. „Við ættum að halda þessu fyrir okkur,“ sagði hún eftir á og hló. 

Ég á tvítuga kærustu. Við höfum verið saman í 18 mánuði en henni virðist leiðast kynlífið og það er ekkert í líkindum við það sem ég upplifði með yfirmanni mínum. Yfirmaður minn er giftur og á son en ég get ekki hætt að hugsa um hana. Hún talar bara um vinnuna við mig núna og ég veit ekki hvað henni finnst um mig. 

Um leið og ég skammast mín fyrir það sem ég gerði langar mig að gera það aftur. Fyrirtækið heldur stóra skemmtun um jólin á fínu hóteli. Ég er að hugsa um að bóka herbergi og reyna að fá yfirmann minn til þess að eyða nóttinni með mér. 

Maðurinn vill helst fá að eyða nótt með yfirmanni sínum.
Maðurinn vill helst fá að eyða nótt með yfirmanni sínum. mbl.is/Thinkstockphotos

Ráðgjafinn segir að yfirmaðurinn viti að ef þetta heldur eitthvað áfram er starf hennar í hættu auk þess að hún stefni hjónabandinu í hættu. 

Það er rétt af hennar hálfu að breyta sambandinu aftur í hefðbundið vinnusamband. Ekki bóka herbergi. Í staðinn skaltu fara snemma heim með leigubíl og halda þig frá áfenginu. Taktu það í sátt að þetta voru ein mistök og hættu að hugsa um það. 

Kynlífið gæti virkað eins og leiðindaverk fyrir kærustuna þína en það að halda fram hjá er ekki rétta lausnin. Þú veist hversu gott kynlíf getur verið þannig að nýttu reynslu þína með yfirmanni þínum til þess að kveikja í kynlífinu með kærustunni þinni. Hún verður ákafari ef hún fær meiri unað út úr kynlífinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál