Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir er miður sín eftir að tölvu hennar var rænt úr bíl hennar í Los Angeles í gær. Sköngkonan var á ferð í Melrose Blvd í Hollywood og skildi hún Apple-tölvu sína eftir í bílnum. Þegar hún kom til baka var búið að stela tölvunni. Á Facebook-síðu sinni segist Anna Mjöll vera afar ósátt við þjófnaðinn.
„My laptop which I never ever back up and has my entire life on it, was just stolen out of my car on Melrose Blvd earlier today. Does anyone know if there is a way to recover a stolen Apple laptop with your serial number or something? Help!“
Eins og gefur að skilja er missirinn mikill. Vonandi kemst tölva hennar í leitirnar.