Victoria Principal varð heimsfræg þegar hún lék Pamelu Ewing í Dallas-þáttunum sem hófu göngu sína 1978. Nú, 33 árum síðar, er varla að sjá að frú Principal hafi elst neitt. Í dag er hún 61 árs.
Daily Mail birti myndir af henni þar sem hún var í verslunarferð ásamt vini sínum á Mailbu-ströndinni í Kaliforníu í vikunni. Hún var ungleg að sjá, klædd í gallabuxur, svarta skyrtu og leðurstígvél.
Hér má sjá fyrsta sýnishornið úr nýju Dallas-þáttunum sem sýndir verða næsta sumar á TNT-sjónvarpsstöðinni.