Ljósmyndari mbl.is náði síðustu myndinni

Kate Holmes og Tom Cruise.
Kate Holmes og Tom Cruise. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Síðasta myndin sem náðist af Katie Holmes og Tom Cruise hönd í hönd var tekin af íslenska ljósmyndaranum Júlíusi Sigurjónssyni, sem er ljósmyndari Smartlands, mbl.is og Morgunblaðsins. Júlíus var á ferð um miðbæ Reykjavíkur þegar hann rakst á stjörnuhjónin og smellti af þeim nokkrum myndum. 

Myndirnar voru teknar í miðbæ Reykjavíkur, í Þingholtsstræti, tveimur vikum áður en Holmes sótti um skilnað. Eins og sést á myndunum virtist allt vera í himnalagi á milli þeirra þegar þau spásseruðu um götur Reykjavíkur.

Eins og fram hefur komið ætlaði Tom Cruise að halda upp á 50 ára afmæli sitt á Íslandi hinn 3. júlí og var hann búinn að bjóða stórstjörnum á borð við Beckham-hjónin David og Victoriu og Will Smith í afmælið sitt. Vegna skilnaðarins verður lítið um hátíðahöld hjá stórleikaranum. Því miður.

Mynd Júlíusar endaði á vef Daily Mail eins og sést HÉR.

Kate Holmes og Tom Cruise á göngu í miðbæ Reykjavíkur.
Kate Holmes og Tom Cruise á göngu í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Tom Cruise og Kate Holmes í Reykjavík.
Tom Cruise og Kate Holmes í Reykjavík. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál