Leikarinn Ben Stiller er ennþá á Íslandi og birtir mynd af sér á Twitter þar sem hann fýkur í fjöru. Leikarinn lét það fylgja með að hann væri ennþá á Íslandi og það væri hávaðarok. Á dögunum kom fram að herra Stiller ætlaði að vera í tökum á Vesturlandi næstu vikurnar. Smartland hefur hinsvegar heimildir fyrir því að myndin sé tekin á Höfn í Hornafirði og Ben Stiller og hans fólk sé í kvikmyndatökum þessa dagana á Vatnajökli. Eins og sést á myndinni virðist honum ekki leiðast neitt þótt það blási örlítið.