Þessar skemmtilegu myndir voru teknar af spænsku konungsfjölskyldunni á dögunum í Marivent-höllinni á Mallorca. Á myndunum eru þau Felipe Spánarkonungur og Letizia Spánardrottning í hallargarðinum ásamt dætrum sínum tveimur, þeim Leonor sem er tíu ára gömul og Sofiu sem er níu ára gömul.
Fjölskyldan dvelur iðulega á sumrin í Marivent-höllinni. Á myndunum er fjölskyldan öll í stíl, klædd í léttan og sumarlegan fatnað í bláu og hvítu. Myndirnar hafa hlotið mikið lof og þykja afar stílhreinar og flottar.