Ágústa Eva og Aron skráð í samband

Aron Pálmarsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir.
Aron Pálmarsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir. Ljósmynd/Samsett

Ástin blossaði upp á milli Ágústu Evu Erlendsdóttur og Arons Pálmarssonar í sumar. Rétt í þessu gengu þau skrefinu lengra og skráðu sig í samband á Facebook. 

Ævintýraprinsessan Ágústa Eva er búin að vera á lausu síðan seint á síðasta ári en í sumar kviknaði ástin milli hennar og Arons Pálmasonar handboltastjörnu. Parið býr í sitthvoru landinu en hefur notað hvert einasta tækifæri til samvista. Bæði njóta þau mikils frama í störfum sínum. Hann í handboltanum og hún á sviði tónlistar og leiklistar. Ágústa Eva fer með eitt af aðalhlutverkunum í nýjustu mynd Sigurjóns Sighvatssonar, Ég man þig, sem gerð er eftir samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur. Auk þess er hún að vinna með Sveppa, Steinda, Sögu Garðarsdóttur og fleirum þessa dagana við upptökur á nýrri grínseríu fyrir Stöð 2. 

Aron spilar leikur með MKB Veszprém í Ungverjalandi. 

Smartland segir bara Allt fyrir ástina, áfram veginn og skál fyrir Ágústu og Aroni! 

Ágústa Eva Erlendsdóttir.
Ágústa Eva Erlendsdóttir.
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál