Skildi eftir 23 ára samband

Lóa Pind Aldísardóttir fjölmiðlakona prýðir forsíðu MAN.
Lóa Pind Aldísardóttir fjölmiðlakona prýðir forsíðu MAN.

Nýtt MAN er komið út. Að þessu sinni prýðir fjölmiðlakonan Lóa Pind Aldísardóttir forsíðu MAN. Lóa hefur ýmsa fjöruna sopið en segir að lífið sé of stutt til þess að lifa því ekki til fulls. 

Leiðir Lóu og sambýlismanns hennar Sigfúsar Bjartmarssonar skildu fyrir rúmu ári eftir 23 ára samband. Lóa segir þá ákvörðun hafa verið þá erfiðustu sem hún hefur tekið á ævinni.

„Það er ekki einfalt að slíta svona löngu sambandi og ákvörðunina tekur maður hvorki hratt né léttilega. Við vorum búin að koma okkur vel fyrir í húsi sem við byggðum saman, áttum sumardvalarstað og barn sem við elskum bæði, og auðvitað voru hin börnin okkar, Kolbrún dóttir hans og Tumi sonur minn, búin að vera í lífi hvors annars allan þennan tíma. Þess vegna var það mjög stór ákvörðun að loka þessum dyrum og fara eitthvert annað – en ég er mjög sátt við hana. Við lifum orðið svo lengi, ég er fílhraust og spræk ung kona en var samt nærri aldarfjórðung í þessu sambandi. Við áttum góðan tíma saman, en hann var hættur að vera jafn góður og þá var rétt að láta leiðir skilja og gera eitthvað annað við næsta kafla í lífinu,“ segir Lóa í viðtali við MAN. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál