Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| mbl
| 13.12.2011
| 18:17
| Uppfært
8.2.2012
14:16
Ella fagnar með UN Women
Hinn 18. desember verður afmælisfögnuður UN Women í versluninni Ellu. Fyrsta starfsári UN Women lýkur senn og ætla forsvarsmenn og -konur að fagna yfir ljúffengu jólaglöggi og léttum veitingum.
Afmælið hefst klukkan 16:00 og stendur til klukkan 18:00. Þess má geta að verslun ELLU verður opin til klukkan tíu þennan dag.
Tónlistarkonan Sóley mun syngja en hún hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir sólóplötu sína We Sink. Ella ætlar að gefa hluta af sölu ilmvatnsins Ella Day og Night til UN Woman þetta kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























