Klæddist grárri kápu frá Alexander McQueen

Alexander McQueen er í miklu uppáhaldi hjá Katrínu Middleton.
Alexander McQueen er í miklu uppáhaldi hjá Katrínu Middleton. AFP

Katrín Middleton tók á móti forseta Singapúr við hátíðlega athöfn í London í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur opinberlega fram eftir að tilkynnt var að þau Vilhjálmur Bretaprins ættu von á öðru barni.

Katrín klæddist glæsilegri kápu með stóru pilsi úr smiðju Alexanders McQueens við athöfnina. Þá var hún einnig með hatt frá Jane Taylor sem hún hefur notað áður. Katrín brosti sínu breiðasta og leit vel út en undanfarið hefur hún glímt við morgunógleði.

Ekki er vitað hversu mikið þessi tiltekna kápa kostar en svipuð kápa frá Alexander McQueen kostar rúmar 400.000 krónur á heimasíðu Net-a-Porter.

Þessi hattur kemur frá Jane Taylor en Katrín er afar …
Þessi hattur kemur frá Jane Taylor en Katrín er afar hrifin af honum og hefur notað hann áður. AFP
Katrín Middleton og Vilhjálmur Bretaprins tóku vel á móti forseta …
Katrín Middleton og Vilhjálmur Bretaprins tóku vel á móti forseta Singapore í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál