Tina Knowles, móðir Beyoncé og Solange Knowles, gekk í það heilaga 12. apríl en dætur hennar virðast hafa brotið helstu brúðkaupsregluna sem segir til um að gestir brúðkaups eigi ekki að klæðast hvítu.
Beyoncé og Solange brutu reyndar ekki regluna þar sem gestum brúðkaupsins var gert að klæðast hvítu á í brúðkaupsveislu Tinu.
Solange klæddist víðum kjól með einni ermi á meðan Beyoncé klæddist aðsniðnum kjól úr blúndu sem minnti helst á brúðarkjól.
Beyoncé birti myndir frá stóra degi móður sinnar á heimasíðu sinni.