Söngkonan Beyoncé skartaði himinháu tagli á Met Gala-ballinu sem haldið var í seinustu viku. Hárgreiðslan fékk mikla athygli en hárgreiðslumaðurinn Neal Farinah ber ábyrgð á taglinu. Það sem fæstir fengu að vita kvöldið sem Met Gala var haldið var að hann fékk lítinn sem engan tíma til að útfæra hárgreiðsluna.
„Við gerðum þetta háa tagl í sameiningu en það var ekki planið,“ sagði Farinah í viðtali við Us Weekly. „Við gerðum það í lyftunni á leiðinni á ballið.“
Í upphafi var hár Beyoncé vafið í háan snúð en söngkonan fílaði ekki hárgreiðsluna og vildi breyta henni á síðustu stundu. „Hún leit á mig og sagði: „Neil, ég vil breyta hárinu, getur þú gert það?“ Hún vildi fá hátt tagl,“ útskýrði Farinah sem hefur unnið með Beyoncé í áraraðir.
Farinah var nokkuð stressaður þegar Beyoncé bað hann að breyta hárgreiðslunni á síðustu stundu en treysti henni. „Hún er valdamikil og veit hvað hún vill.“