Tískan fer í hringi, svo mikið er víst. Þessa dagana eru tískustraumar innblásnir af áttunda áratug seinustu aldar áberandi. Kögur, rúskinn og loð leikur þá stórt hlutverk.
Ef flíkurnar eru hippalegar þá eru þær „inni“ ef svo má að orði komast. Meðfylgjandi eru myndir af nokkrum flíkum og fylgihlutum sem steinliggja.
Þessir skór koma úr Zara og kosta 11.995 krónur.
Hippaleg taska úr Zara. 11.995 krónur.
Sumarlegur og léttur kjóll úr Topshop.
Geggjaðir skór úr smiðju Chloé. Fást á Net-a-Porter.
Töffaralegt vesti úr smiðju Marni. Fæst á Net-a-Porter. Alveg í anda áttunda áratugarins.
Þetta vesti kemur úr Vila og kostar 8.490 krónur. Þetta vesti setur hippalegan svip á hvaða dress sem er.
Geggjaður trefill úr Gucci. Fæst á Net-a-Porter.com.
Skemmtilegt dress frá Marni í anda áttunda áratugarins.
Guðdómleg gleraugu frá Miu Miu. Kosta 204 pund á Net-a-Porter.com.