Tískubörnin vinsælu á Instagram

Börn geta sko alveg veitt innblástur þegar kemur að klæðavali.
Börn geta sko alveg veitt innblástur þegar kemur að klæðavali.

Það eru ekki aðeins fullorðnir einstaklingar sem sinna hlutverkum tískufyrirmynda heldur geta börn einnig veitt innblástur þegar kemur að klæðavali. Smáforritið Instagram er tilvalinn vettvangur til að deila ljósmyndum af flottu flíkum og nýjum tískustraumum. Nokkur börn hafa þá náð töluverðum vinsældum á Instagram fyrir flottan klæðaburð og einstakan stíl.

Þessi börn eru oftar en ekki synir og dætur stílista eða frægra einstaklinga. Til að mynda er hin fimm ára gamla Alaia Rose, dóttir stílistans Monicu Rose, geysivinsæl á samfélagsmiðlum fyrir flottan stíl. Sömu sögu má segja um hina níu ára Suri Cruise, dóttur Katie Holmes og Tom Cruise, en á Instagram má finna aragrúa af tískumyndum af henni. Hvort sem það eru börnin sjálf eða þá foreldrar þeirra sem velja og setja saman flíkurnar þá er gaman að fylgjast með þeim.

Alaia Rose hefur brennandi áhuga á tísku þrátt fyrir ungan …
Alaia Rose hefur brennandi áhuga á tísku þrátt fyrir ungan aldur. Instagram
Alaia á marga aðdáendur á Instagram.
Alaia á marga aðdáendur á Instagram. Instagram
Alaia er dóttir stílistans Monicu Rose sem sér um að …
Alaia er dóttir stílistans Monicu Rose sem sér um að klæða Kardashian-systurnar. Instagram
Suri Cruise er vinsæl á Instagram.
Suri Cruise er vinsæl á Instagram. Instagram
Suri er dóttir Katie Holmes og Tom Cruise.
Suri er dóttir Katie Holmes og Tom Cruise. Instagram
Suri Cruise er alltaf fín.
Suri Cruise er alltaf fín. Instagram
Kingston Rossdale, sonur Gwen Stefani, er algjör töffari.
Kingston Rossdale, sonur Gwen Stefani, er algjör töffari. Instagram
Kingston Rossdale er alltaf flottur.
Kingston Rossdale er alltaf flottur. Instagram
Maður þarf víst ekki að vera gamall til að kunna …
Maður þarf víst ekki að vera gamall til að kunna að klæða sig. Instagram
Khlogram er með tæpa 1900 fylgjendur á Instagram.
Khlogram er með tæpa 1900 fylgjendur á Instagram. Instagram
Hún elskar að klæða sig upp.
Hún elskar að klæða sig upp. Instagram
Alltaf svo fín.
Alltaf svo fín. Instagram
Snáðinn Alonso Mateo er vinsæll hjá tískuáhugafólki.
Snáðinn Alonso Mateo er vinsæll hjá tískuáhugafólki. Instagram
Luisa Fernanda Espinosa, móðir Alonso, birtir reglulega tískumyndir af syni …
Luisa Fernanda Espinosa, móðir Alonso, birtir reglulega tískumyndir af syni sínum. Instagram
Aila Wang, frænka hönnuðarins Alexander Wang, er algjör tískuprinsessa.
Aila Wang, frænka hönnuðarins Alexander Wang, er algjör tískuprinsessa. Instagram
Aila Wang með Chanel-tösku, en ekki hvað.
Aila Wang með Chanel-tösku, en ekki hvað. Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál