Júník er ekki lengur bara „djammbúð“

Sara Lind vill breyta um stefnu í Júník.
Sara Lind vill breyta um stefnu í Júník.

Sara Lind Pálsdóttir, betur þekkt sem Sara í Júník, hefur undanfarið einbeitt sér að því að breyta ímynd Júník. Hún er nýkomin úr fæðingarorlofi sem hún nýtti meðal annars í hugmyndavinnu. „Ég velti því fyrir mér hvernig ég gæti breytt stefnu fyrirtækisins þannig að búðin myndi höfða til breiðari hóps,“ segir Sara sem hefur séð um innkaupin frá því að hún opnaði Júník fyrst árið 2011, þá var hún 21 árs.

„Eins og margar stelpur á þeim aldri var ég mikið á skemmtanalífinu og verslaði inn í búðina eftir því, ég vildi hafa þetta svona „djammbúð“. En með árunum sem líða hef ég þroskast mikið og breytt um fatastíl og stefnu. Ég fékk góðan tíma til að spá og spekúlera í þessu og tók loks ákvörðun um að fá Írisi Lóu með mér í lið. Hún er með mjög flottan stíl og hefur vit á tísku, hún er alveg með puttann á púlsinum. Við vinnum nú saman hörðum höndum við að breyta stefnu búðarinnar til þess að ná til breiðari markhóps. Við ætlum að leggja áheyrslu á viðráðanlegt verð og góða þjónustu.“

Íris Lóa og Sara Lind sjá saman um innkaupin í …
Íris Lóa og Sara Lind sjá saman um innkaupin í Júník.

Nýverið fengu þær Sara og Íris hluta af nýrri sendingu af því sem koma skal í Júník. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Við erum mjög spenntar fyrir komandi tímum og vonumst nú til að höfða til kvenna á öllum aldri.“

Breytti ekki um fatastíl á meðgöngunni

„Minn persónulegi stíll er mjög „chillaður“ og frekar rokkaður. Dagsdaglega klæðist ég oftast gallabuxum, víðum bol og Converse-skóm eða „boots“. Og þegar ég kíki eitthvað út á lífið þá vil ég klæðast einhverju sem mér líður vel í, ég er til dæmis mikið fyrir samfestinga þessa dagana,“ segir Sara sem kveðst ekki hafa breytt um fatastíl á meðgöngunni.

„Ég breytti fatastílnum mínum ekki á meðgöngunni né eftir að barnið kom, ég klæddist gallabuxum þó svo að ég væri komin níu mánuði á leið, ég sleppti því bara að hneppa þeim.“

Nýi stílinn sem mun einkenna Júník verður í takt við fatastíl Söru. „Ég ætla að hafa hana svolítið rokkaða, smá Urban og All Saints-stíll. Íris Lóa er líka snillingur þegar kemur að því að velja inn föt, hún fylgist vel með hvað er inni og hvað er úti. Hún er hrifin af verslunum á borð við Urban Outfitters og Free People, þetta verður skemmtileg blanda.“

Meðfylgjandi eru myndir af nýjungum úr Júník.

Það sem koma skal í Júník.
Það sem koma skal í Júník.
Sara Lind er hrifin af samfestingum þessa stundina.
Sara Lind er hrifin af samfestingum þessa stundina.
Í Júník verður lögð áhersla á viðráðanlegt verð og góða …
Í Júník verður lögð áhersla á viðráðanlegt verð og góða þjónustu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál