Lady Gaga í 40 milljóna króna stígvélum

Lady Gaga er sátt með Alexander McQueen-stígvélin sín.
Lady Gaga er sátt með Alexander McQueen-stígvélin sín. Instagram

Tískudívan Lady Gaga deildi fyrr í vikunni ljósmyndum af sér á Instagram sem sýna hana máta stígvél frá tískuhúsi Alexander McQueen.

Gaga hefur lengi verið hrifin af hönnun McQueen. Svo hrifin að hún keypti þrjú pör á uppboði en allur ágóðinn rennur til góðgerðasamtakana UNICEF. Parið fór á allt að 39,8 milljónir á uppboðinu. Stígvélin voru hluti af seinustu línu sem McQueen hannaði áður en hann svipti sig lífi árið 2010.

Skórnir kallast „armadillo“ sem þýðir hitabeltisdýr en lögun stígvélanna minnir óneitanlega á dýrið. Stígvélin voru framleidd í Ítalíu. Þau eru úr við og snákaskinni.

Lady Gaga borgaði margar milljónir fyrir þessi stígvél og styrkti …
Lady Gaga borgaði margar milljónir fyrir þessi stígvél og styrkti gott málefni í leiðinni. Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál