Klæddist milljóna króna pallíettukjól

Zac Efron og Emily Ratajkowski voru flott á rauða dreglinum …
Zac Efron og Emily Ratajkowski voru flott á rauða dreglinum fyrr í vikunni. AFP

Fyrirsætan og leikkonan Emily Ratajkowski klæddist bláum pallíettukjól úr smiðju David Koma á frumsýningu We Are Your Friends í London á þriðjudaginn. Kjóllinn er afar glæsilegur en hann kostar um 1,1 milljón króna.

Ratajkowski fer með eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni We Are Your Friends ásamt leikaranum Zac Efron. Bæði litu þau stórvel út á frumsýningunni en Efron klæddist svörtum jakka og hvítum bol. 

We Are Your Friends kemur í íslensk kvikmyndahús um miðjan september.

Kjóllinn sem Emily Ratajkowski klæddist kostar rúma milljón króna.
Kjóllinn sem Emily Ratajkowski klæddist kostar rúma milljón króna. AFP
Zac Efron klæddist svörtum jakka og hvítum bol á frumsýningunni.
Zac Efron klæddist svörtum jakka og hvítum bol á frumsýningunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál