Skringilegt „trend“ ryður sér til rúms á tískupöllunum

Rick Owens fer ótroðnar slóðir, líkt og sjá má á …
Rick Owens fer ótroðnar slóðir, líkt og sjá má á þessari mynd. mbl.is/AFP

Hönnuðurinn Rick Owens fór heldur betur ótroðnar slóðir þegar hann sýndi nýja vor- og sumarlínu næsta árs á tískuvikunni í París 1. október.

Fyrirsæturnar sem gengu fram á pallinn voru ekki einungis íklæddar fötum Owens, heldur þurftu þær að burðast með aðra fyrirsætu í fanginu.

Til allrar lukku eru fyrirsætur yfirleitt hvorki miklar um sig né þungar, annars hefði byrðin hugsanlega verið of mikil.

Það getur hugsast að þessar fyrirsætur hafi verið ögn vandræðalegar …
Það getur hugsast að þessar fyrirsætur hafi verið ögn vandræðalegar þar sem þær liðu eftir pallinum. mbl.is/AFP
Segja má að þessi hafi verið í öruggum höndum á …
Segja má að þessi hafi verið í öruggum höndum á sýningunni. mbl.is/AFP
Það er ekki verra að vera með breitt bak ef …
Það er ekki verra að vera með breitt bak ef vinna á fyrir Rick Owens. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál