Tískugyðjan Kate Hudson vakti athygli í vikunni þegar hún klæddist loðkápu með hettu frá Dawn Levy á götum New York-borgar. Kápan kostar 51.000 krónur.
Kate Hudson var mynduð bak og fyrir og tískuspekúlantar voru ekki lengi að finna út hvaðan kápan kemur. Kápan fæst á vef Dawn Levy, hún er einnig til í svörtu.