„Þú heyrir engan tala um magrar fyrirsætur“

Ashley Graham tekur sig vel út í auglýsingu frá sundfatamerkinu …
Ashley Graham tekur sig vel út í auglýsingu frá sundfatamerkinu swimsuitsforall.

Fyrirsætan Ashley Graham hefur verið að gera það gott undanfarið, en hún er önnur fyrirsætan í svokallaðri yfirstærð til að prýða síður baðfatatölublaðs tímaritsins Sports Illustrated.

Graham greindi frá tíðindunum á Instagram-síðu sinni, þar sem hún deildi einnig ljósmynd þar sem hún liggur nautnalega í flæðarmálinu.

„Það er opinbert, ég er Sports Illustrated fyrirsæta. Þetta er alger draumur. Takk allir sem tóku afstöðu með línum. Raddir okkar hafa heyrst.“

Graham hefur barist fyrir meiri fjölbreytni í auglýsingum, og er ekki sérlega hrifin af hugtakinu „fyrirsæta í yfirstærð.“

„Ég hef verið kölluð fyrirsæta í yfirstærð síðustu 16 ár. Stundum segi ég það meira að segja sjálf. En þegar allt kemur til alls er þetta merkimiði. Hvers vegna ættum við að vilja vera settar í annan flokk en aðrar fyrirsætur? Þú heyrir engan tala um magrar fyrirsætur, þannig að ég tel mig ekki hafa rangt fyrir mér þegar ég vil ekki láta setja mig í ákveðinn flokk.“

Frétt Independent

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál