Myndi kaupa Gucci-tösku fyrir lottóvinninginn

Unnur Ósk Úlfarsdóttir.
Unnur Ósk Úlfarsdóttir.

Unnur Ósk Úlfarsdóttir, starfsmaður í Mathilda í Kringlunni, nýtur þess að klæða sig upp fyrir sérstök tilefni og er veik fyrir fallegum kjólum. Unnur Ósk er spennt fyrir vor- og sumartískunni og er ánægð að sjá hvað hún er kvenleg og rómantísk þetta árið. Á óskalistanum er svo Gucci-taska og Valentino-skór.

Get­ur þú lýst fata­stílnum þínum?

„Ég klæði mig mikið eftir því skapi sem ég er í. Fatastíllinn minn er þægilegur en kvenlegur. Ég klæðist mikið svörtum gallabuxum og skyrtum og finnst gaman að vera fín. Mér finnst fátt skemmtilegra en að gera mig fína fyrir sérstök tilefni.“

Fyr­ir hverju fell­ur þú yf­ir­leitt?

„Töskum og fallegum kjólum. Ef það er ekkert tilefni fyrir kjólinn þá er ekkert vandamál fyrir mig að finna það.“

Hvað er nauðsyn­legt að eiga í fata­skápn­um sín­um þessa stundina?

„Það er alltaf gott að eiga góðan og fallegan pels fyrir íslenska veturinn og leðurbuxur.“

Hver er nýj­asta flík­in í fata­skápn­um þínum?

„Hinar fullkomnu svörtu „high-waisted” buxur frá Levi’s og oversized skyrta frá Hunkydory.“

Hvað vant­ar í fata­skáp­inn þinn?

„Vantar mann yfirhöfuð eitthvað? Þessa stundina finnst mér mig vanta svartan mokkajakka og koníaksbrúna rúskinnsskyrtu.“

Er eitthvað sem þú myndir aldrei klæðast?

„Disco-pants sem voru svo vinsælar hér um árið.“

Áttu þér upp­á­halds hönnuð?

„Ef ég ætti að velja einn þá væri það klárlega Yves Saint Laurent. Töffaraleg hönnun en á sama tíma kvenleg, sem höfðar vel til mín.“

Er ein­hver fræg­ur hönnuður, hönn­um eða trend of­met­ið að þínu mati?

„Mér finnst ofmetið að vera eins og allir aðrir, það er best að vera alltaf maður sjálfur.“

Hvað finnst þér mest heill­andi í vor-og sum­ar­tísk­unni?

„Ég er að fíla þessar plíseringar og fljótandi snið á tískupöllunum. Mér finnst líka skemmtilegt hvað það er mikil rómantík í gangi.“

Áttu þér tískufyrirmynd?

„Ég á mér kannski ekki eina sérstaka tískufyrirmynd en mér finnst Olivia Palermo alltaf rosalega fín, hvort sem það kemur að klæðnaði eða hári. Ég get alltaf leitað til hennar að innblæstri.“

Hvað er á óskalistanum þessa stundina?

„Teinóttur blazer frá Polo by Ralph Lauren sem fæst auðvitað í Mathildu. Svo ef ég vinn einhvern tímann í lottói þá er Gucci taska og Valentino Rockstud hælaskór efst á óskalistanum.“

Unnur Ósk hefur gaman af því að dressa sig fínt …
Unnur Ósk hefur gaman af því að dressa sig fínt upp.
Olivia Palermo er alltaf flott að mati Unnar.
Olivia Palermo er alltaf flott að mati Unnar. AFP
Skór frá Valentino eru ofarlega á óskalista Unnar.
Skór frá Valentino eru ofarlega á óskalista Unnar.
Unni langar í tösku frá Gucci.
Unni langar í tösku frá Gucci. AFP
Skyrturnar frá Hunkydory passa í hvaða fataskáp sem er, Unnur …
Skyrturnar frá Hunkydory passa í hvaða fataskáp sem er, Unnur fékk sér nýverið eina slíka.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál